Anna Panna
Litla fólkið
Heimasíður
21.04.2006 21:17:13 / annaei

Flutningar

Nú kveð ég blog.central.is og flyt mig á nýjar slóðir. Nýja síðan er:

http://www.annapanna.blog.is/ 


» 0 hafa sagt sína skoðun

15.04.2006 15:20:00 / annaei

Dagar 4 og 5

Jæja, tveir skidadagar bunir i vidbot. Threytan er farin ad segja toluvert til sin og lappirnar ordnar threyttar, og minar allar blaar og raudar. Tedda er samt buid ad vera alveg frabært. Forum til Riksgränsen i Svithod i gær. Tad var bara agætis skidasvædi, allavega skemmtum vid okkur mjog vel. Tad er klukkutima lestarferd tangad og tedda virdist afar afsloppud leid. T.d. lestarstjorinn virdist ekkert vera ad stressa sig. Lestir eru nu ansi oft a rettum tima en tessi var allt annad en tad. Turftum tvi ad bida dalitid eftir lestinni til baka. Gerdum bara sma "afterski" ;) og tokum lifinu med ro. I dag skidudum vid svo bara herna i Narvik og tad var lika mjog gaman, of corse. Nu eigum vid bara eftir 1 skidadag, 5 ad baki.

Kari, nei vid hofum nu ekki verid svo god i 360, eg er nattla versti skidastokkvari i heimi! Vid lekum okkur samt daltid i svona park sem er herna, med allskonar stokkpollum og reilum. Eg a nokkrar yyyyndislegar myndir tar sem Jens threytir frumraun sina a reilum. Alveg hilarious! Eg er bara svo hrædd um ad hann stelist i myndavelina og eydi teim!

Vid erum i mat herna a hotelinu, t.e. morgunmat og kvoldmat. Maturinn herna hefur samt komid mer a ovart. Fyrst fengum vid pasta med laxi, svo lambasteik, svo einhvern pottrett med tvi sem jens helt ad væri hreindyr og mer totti vont, og svo i gær grisasteik. Tedda hefur runnid merkilega ljuflega nidur, enda er madur svo svangur tegar madur kemur af skidum. Svo er alveg brilljant ad fara inn i matsal og fa matinn a innan vid 5 minutum! Erum reyndar ad hugsa um ad fara a "Viva Italia" i kvold of fa okkur gomsætar pizzur, fer eftir tvi hvad er i matinn i kvold.

Jæja, yfir og ut i bili!


» 1 hafa sagt sína skoðun

13.04.2006 16:22:55 / annaei

Dagar 2 og 3

Jæja, ta eru 2 dagar til vidbotar lidnir, ja eda alveg ad verda lidnir. Alla dagana hefur verid frabært vedur, glampandi solskin og fint. Vid erum buin ad eiga goda skidadaga to vid hofum tekid tvi adeins rolegar i dag tvi fæturnir voru farnir ad kvarta undan hordu færinu. Vid gengum teim mun meira i dag og erum buin ad skoda rosalega margt herna. A morgun ætlum vid svo yfir til Riksgränsen i Svithod, en tangad er klukkutima lestarferd. Tad verdur gaman ad profa tad.

Annars hringdi bifvelavirkinn i gær og sagdi ad tad væri eitthvad farid i velinni. Tad rosalega dyrt ad annadhvort gera vid slikt eda skipta um vel ef vid fengjum nyja, alla vega midad vid hvad vid borgudum fyrir hann og hvad vid fengjum fyrir hann nuna. Billinn okkar er tvi eignlega bara dainn :cry: og vid tvi billaus nuna. Meira vesenid. Jæja, ætla ad reyna ad finna fyrir okkur flugfar til Akureyrar fyrst vid getum ekki keyrt nordur.


» 1 hafa sagt sína skoðun

11.04.2006 19:07:33 / annaei

Samansafn hrakfalla og tilviljana

Nu erum vid stodd a otrulega fallegum stad sem heitir Narvik. Mer hefur to virst sem einhver vilji ekki ad vid seum her. Tad hefur ekki gengid alveg sem best ad komast hingad. Fyrst ma nefna verkfall Braathens starfsfolks sem to leystist i tima. A sunnudag heldur vid borubrott af stad sudur. Eftir pissustopp i Stadarskala for billinn hins vegar ekki i gang. Eftir 1 og 1/2 tima af gruski var Jens ordinn grutskitugur en billinn for enn ekki i gang. A teim timapunkti satum vid vonlaus og urraedalaus i bilnum tegar fodurbrodir minn lagdi vid hlidina a okkur. Tau voru bara tvo i bil og var tvi plass fyrir okkur. Sudurferdin tok hins vegar 7 og 1/2 tima. Mer tykir akaflega leidinlegt ad sitja svona i bil og var tedda tvi alveg helst til langt fyrir mig. Vid vorum to takklat fyrir ad fa far sudur og ma segja a d tetta  hafi verid halfgert lan i olani.

A manudag heldum vid svo ut a flugvoll m ed flugrutunni tvi billinn var natturulega enntha i Stadarskala.  Vid hofdum samband vid bifvelavirkja a Bordeyri sem aetladi ad kikja a thetta fyrir okkur. I Oslo hofdum vi dnokkud stuttan tima, eda um klukkutima til ad saekja toskurnar og koma okkur i naesta flug. Tad tokst held eg eingongu fyrir tad ad nanast enginn annar var a flugvellinum og tvi hvergi radir. Vid vorum s.s. komin ad hlidinu korteri adur en velin atti ad fara i loftid.

Tegir vid svo lentum tok vid rumlega klukkutima rutuferd til Narvik og svo taxi fra rutustod a hotelid sem er vid endann a skidabrautunum. Vid turfum bara ad labba yfir gotuna til ad tsaka lyftu. Tad var akkurat tad sem vid gerdum i morgun. En thratt fyrir allt thetta vesen var lanid enn ekki farid ad leika vid okkur. Klafurinn biladi og vid satum fost i honum i klukkutima! Sarabaeturnar voru eplasafaferna tegar upp var komid!

Ad odru leiti er dagurinn buinn ad vera hreint agaetur. Tad er buid ad vera frabaert vedur og utsynid er alveg utroligt! Eg var reyndar i sma vandraedum me d skidin min til ad byrja med tvi eg let bryna a teim kantana adur en eg kom ut og eg matti ekkert hreyfa mig ta rifu kantarnir i og eg missti jafnvaegid. Mig grunar ad teir hafi verid helst til mikid bryndir.

Vid kiktum lika i baeinn, her er fullt af budum en eg var svo syfjud ad mer tokst ekki ad kaupa neitt. Vid svafum nefnilega bara 6 tima i nott, tad er alls alls ekki nog fyrir mig. Eg rafadi tvi um budirnar i moki. Skoda betur seinna.

Svona, aelti eg lati tedda ekki gott heita i bili. Aelta ad fara aftur inn i herbergi og athuga hvort jens se nokkud buinn med paskaeggid. Okkur gengur half illa ad horfa bara a tad a bordinu og bida eftir ad retti timinn komi. Jaeja, laet heyra fra mer sidar.


» 1 hafa sagt sína skoðun

09.04.2006 09:11:33 / annaei

Noregur, here I come!

Jæja, þá er það Noregur. Verkfallið er leyst og ekkert því til fyrirstöðu að drífa sig út. Reyndar funda flugmenn hjá SAS á mánudag og ákveða hvort þeir boða til verkfalls. Það gæti því verið að ég festist úti vegna verkfalls flugmanna, en ég verð amk komin út þegar verkfallið skellur á. Það er þó miklu betra en að vera fastur hérna á Íslandi.

Skemmti ég mér vel, þið líka. Eigi þið góða páska og ekki fara varlega í páskaeggjaátinu!

Heija Norge!


» 1 hafa sagt sína skoðun

07.04.2006 10:20:08 / annaei

Þvílík og heljarinnar snilld

Sáu þið Gettu betur í gær? Ef ekki þá mæli ég sterklega með að þið farið inn á ruv.is og horfið á þáttinn. Sjaldan hefur sést annað eins burst og í gær, hvað þá í úrslitakeppni. Það segir meira en mörg orð um þessa keppni að MA fékk fleiri stig úr hraðaspurningum en versló fékk úr allri keppninni. Staðan var s.s. í lokin 34-22 fyrir MA og fengu MA 24 stig úr hraðaspurningum! Þvílíkur unaður! Eins og segir á vef MA, þá er hljóðneminn loksins kominn heim!

» 2 hafa sagt sína skoðun

06.04.2006 12:47:11 / annaei

ARG!!!!!!!!!!!!!!!

Þetta er bara ekki sanngjarnt! Þetta er flugfélagið sem við ætlum með um páskana!!!!!!

http://www.ruv.is/main/view.jsp?branch=2574128&e342RecordID=127645&e342DataStoreID=2213589

Bjévítans fólk, það ætti að banna svona lagað!


» 0 hafa sagt sína skoðun

05.04.2006 19:10:17 / annaei

Dagarnir undanfarið

Nú er allt á suðupunkti. Það er það nú ansi oft en nú er alveg að sjóða uppúr. Það hefur þó margt ánægjulegt drifið á daga mína.

Nú er ég s.s. á milli prófa, þ.e. ég tók eitt í gær og tek eitt á morgun. Það verður nú fínt að klára það, reyndar á ég svo eftir að gera einhver verkefni svo svo náttúrulega lokaverkefnið ógurlega.

Það hefur verið mjög gestkvæmt í skólanum undanfarið. Á föstudaginn kom Stórsveit Reykjavíkur sem Sammi í Jagúar stjórnaði. Þeir tóku nokkur hress lög og það var rífandi stemning í kvosinni. Í dag kom svo Andri Snær Magnason og las upp úr og fjallaði um nýjustu bók sína, Draumalandið.

Eins og þetta tvennt dugi ekki til að fylla upp í menningarkvóta minn á svo stuttum tíma þá fór ég að sjá Jesus Christ Superstar um daginn og er að fara að á Litlu hryllingsbúðina á föstudaginn.

Um helgina förum við svo suður og svo til Noregs á mánudaginn, spennandi!! Ég get ekki beðið, það verður svo fínt að geta skíðað allan daginn :D

Jájá, svona er þetta nú. Best ég skelli einum brandara hérna með:

Það voru einu sinni tvei heyrnarlausir menn að tala saman. Sá fyrri sagði við hinn: "Ertu að fara að veiða", hinn svaraði "nei nei, ég er að fara að veiða" og þá svaraði sá fyrri: "já gott, ég hélt þú værir að fara að veiða". :haha:


» 0 hafa sagt sína skoðun

01.04.2006 09:53:07 / annaei

Atvinnuleysisbætur

Ég er búin að komast að því, mér til mikillar þjáningar, að atvinnuleysisbætur á Íslandi eru hærri en launin sem ég var með í skítajobbinu í Finnlandi. Ég vann frá 6-14 (þurfti að taka strætó korter yfir 5) og þetta var langsamlega erfiðasta vinna sem ég hef á ævinni unnið! (Og þar með talið að hlaupa út um allt á eftir 30 öskrandi börnum allan daginn, draga þau upp í Gamla og grilla óní þau!) Ég slefaði rétt upp í 70 þús á mánuði eftir skatta! Alveg glatað! Ég var bara eitthvað að pirra mig á þessum um daginn.

Í fréttum í gær var verið að tala við börn í einhverjum skóla í Reykjavík. Þau héldu "ömmu og afa dag" í skólanum og ágóðinn átti að renna til eldri borgara. Ung stúlka var spurð út í hvers vegna verið væri að styrkja gamla fólkið og hún (vel að sér í því sem er í gangi) minntist á að í fréttum undanfarið hefðu komið margar fréttir um lélegan aðbúnað gamls fólks, "þau þurfa stundum að vera mörg saman á herbergi og svo eru gömul hjón bara tekin í sundur, já eða.....". (svo heyrði ég ekki meira ég hló svo mikið). Smá orðaklúður. Það eru nú ekki til svo litli peningar í þessu landi að það þurfi að taka gamla fólkið í sundur og nota það í varahluti ;)

En nú eru bara 8 dagar í að ég fari til Noregs svo það er tími til að gleðjast. Þá verð ég líka búin með prófin mín 2! Talandi um próf, best ég fari að læra.


» 0 hafa sagt sína skoðun

28.03.2006 22:36:32 / annaei

Hmm

Hver er staðan nú?

Fór á frááábæra Hjálma tónleika á laugardagskvöldið.

Skíðaði fimmtudag og föstudag. Verkjaði svakalega mikið í lærin.

Var dugleg að læra um helgina, hefði átt að vera á skíðum!

Fór á djísús kræst súperstar í kvöld. Það var mjög gaman.

Veðrið er yyyndisleg! Það er spáð snjókomu eins langt og vitrustu menn sjá!

Vika í lokapróf, úff!

Tvær vikur í Norg, jeij!


» 0 hafa sagt sína skoðun

23.03.2006 20:36:37 / annaei

Anna þreytt

...en samt ánægð.

Sko, við fórum, eftir vinnu í dag, á skíði. Það er nú ekki annað hægt þegar það er búið að snjóa svona mikið. Það voru ákaflega fáir á skíðum sem er líklega vegna þess að það var svo mikil snjókoma og lélegt skyggni. Það þýddi náttúrulega að það var allt óskíðað :D Ég hef aldrei hlegið jafn mikið í skíðalyftu og á leiðinni upp í strýtuna í fyrsta skiptið í dag. Það var nefnilega allt fullt af rifsköflum en málið var að það var ekki sjens að sjá þá svo að allt í einu komu hossur.

Þetta var náttúrulega bara rosalega. Ég er svaka þreytt í lærunum! En það var frekar erfitt að sjá nákvæmlega ekkert. Þegar við Jens vorum á leið suður til að skíða kúlusúkk leiðina hvarf hann allt í  einu og ég sá skíðin upp í loft. Hann fór fram af hengju og fór fram fyrir sig. Frekar fyndið. Og svo átti ég að fylgja, rææææt.

Það eru svona dagar sem réttlæta allt snjóleysið í vetur! Ég hef aldrei skíðað í jafn djúpu púðri!


» 0 hafa sagt sína skoðun

21.03.2006 10:16:44 / annaei

Ég er enginn feministi...

... en nú get ég ekki annað en verið sammála Feministafélagi Akureyrar um klaufaleg ummæli utanríkisráðherra.

Af mbl.is:

Feministafélag Akureyrar harmar þau ummæli sem að Geir H. Haarde utanríkisráðherra lét frá sér á fundi síðastliðið laugardagskvöld, þar sem hann ræddi um brottför hersins og þá möguleika sem við ættum í stöðunni. Geir notaði eftirfarandi samlíkingu: „Það er ekki alltaf hægt að fara heim með sætustu stelpunni á ballinu, en önnur gerir kannski sama gagn“, segir í tilkynningu frá félaginu.


» 4 hafa sagt sína skoðun

15.03.2006 18:01:24 / annaei

Smokkar

Ég man núna hvað það var sem ég ætlaði að skrifa hér í gær.

Í gær fékk ég Tiger blað með fréttablaðinu, alltaf gaman að því. Það hins vegar sem stakk dálítið í augun í blaðinu voru smokkarnir. Nú eru þeir farnir að selja 3 Tiger smokka á 200 kall. Jah, satt að segja myndi ég nú ekki treysta þeim fyrir einhverju jafn mikilvægu og smokkar eiga að sjá um.... eða hvað. Einver tilbúinn til að gera tilraun og tilkynna mér niðurstöðurnar?


» 0 hafa sagt sína skoðun

14.03.2006 23:04:46 / annaei

Áfram af ástarmálum

Ég fékk um daginn annað sms frá loverboy-inum mínum. Það hljómaði svona: "Ég bíð eftir þér við endum saman, sjáðu til"

Ég bíð spennt eftir framhaldinu. Vonandi fer hann að senda blóm næst og svoleiðis :D Merkilegt alveg hreint.

Núna framundan er helvíti. 3 vikur í bæði lokaprófin mín. Bæði lokaprófin eru s.s. í seinustu kennsluviku, 4. og 6. apríl. í næstu viku þarf ég líka að skila ritgerð og svo þarf ég að fara að skila rannsóknaráæltun fyrir lokaverkefnið mitt. Reyndar á ég svo eftir prófin eftir að gera 1 verkefni í öðru faginu. Þetta verður algjör kleppur núna. Ég á nefnilega eftir að lesa ansi mikið fyrir þessi próf. Reyndar verð ég að viðurkenna að það verður ljúft að vera búin með próf og að mestu með þessa önn (fyrir utan eitt verkefni) fyrir páskafrí. Svo er það bara lokaverkefnið í sumar, og voilá, ég búin að læra :D Get ekki beðið.

Ég reyndar sé ekki fram á að komast mikið á skíði næstu 3 vikurnar, þarf að liggja allar helgar og öll kvöld í bókunum núna. En kemst svo til Noregs að því liðnu. Vá hvað ég hlakka til!

Í dag mundi ég eitthvað hrikalega sniðugt sem ég hugsaði með mér að ég ætti að blogga um, ekki man ég það nú lengur. Svona er þetta alltaf. Man það kannski seinna.


» 0 hafa sagt sína skoðun

06.03.2006 21:46:06 / annaei

Hvar er riddarinn á hvíta hestinum?

Það hefur ekki verið nein eftirfylgni af þessari ástarjátningu og virðist sem viðkomandi hafi dregið hana til baka eða hafi verið svo drukkinn að hann muni ekki eftir þessi. Allavega þekki ég viðkomandi ekki svo að ætli ég haldi mig ekki við Jens í bili ;) Sé hvort leynilegi ástmaðurinn láti heyra eitthvað meira í sér. Kannski ruglast hann aftur á númeri um næstu helgi, það sakar allavega ekki að bíða í voninni, eitthvað þarf að gera til að lífga upp á annars grámyglulega daga vinnu og náms þessa dagana. Verkefnin hellast yfir mig og ég á m.a. að vera að læra núna. Það er auðvitað aldrei betra að blogga en akkúrat þegar maður á að vera að læra.

Vonandi fór leiksigur minn í Gettu betur ekki framhjá neinum. Ég held ég ætti að íhuga það alvarlega að gerast þýskukennari, ég tók mig svo helv**** vel út! Glæsilegur sigur annars hjá mínum mönnum, án efa því að þakka að ég tók þá í þýskutíma rétt fyrir keppnina ;)


» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 10